Fyrirtækið

ERGO lögmenn er traust og framsækin lögmannsstofa með starfsstöð í Turninum við Smáratorg í Kópavogi. Markmið ERGO lögmanna er að veita viðskiptavinum sínum faglega og persónulega þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög, banka eða einstaklinga, hér á landi sem og erlendis.
Lögmenn stofunnar, sem búa yfir víðtækri reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf, kappkosta við að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna í hvívetna með fagmennsku að leiðarljósi.

Eigendur ERGO lögmanna eru Einar Hugi Bjarnason hdl., Haukur Örn Birgisson hrl. og Jóhann H. Hafstein hdl. Haukur Örn Birgisson er jafnframt starfandi framkvæmdastjóri stofunnar.
ERGO lögmenn slf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogi

Sími: 412 2800
Fax: 412 2801

Fáðu leiðbeiningar

Þjónusta

Lögmenn stofunnar annast alla almenna lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Viðtæk reynsla starfsmanna ERGO lögmanna tryggir viðskiptavinum örugga, vandaða og skjóta þjónustu. Þjónustu ERGO lögmanna má skipta niður á þrjú svið.

Gjaldskrá ERGO lögmanna
Sækja pdf skjal
Almennt svið
Meðal verkefna sem lögmenn stofunnar sinna fyrir einstaklinga má nefna almenna samningsgerð, hagsmunagæslu vegna umferðar- og vinnuslysa, mál á sviði vinnuréttar, fasteignakauparéttar, erfðaréttar og eignaréttar auk verjendastarfa í sakamálum.
Nánar um Almennt svið

Fyrirtækjasvið
Verkefni stofunnar á fyrirtækjasviði eru m.a. fólgin í ráðgjöf vegna kaupa og sölu fyrirtækja, samningsgerðar, gerð áreiðanleikakannana og hagsmunagæslu á sviði samkeppnismála. Einnig bjóða ERGO lögmenn viðskiptavinum sínum lögfræðilega innheimtu vanskilakrafna
Nánar um Fyrirtækjasvið
Alþjóðasvið
Lögmannsstofan hefur yfir að ráða lögmönnum með reynslu af alþjóðlegum viðskipta- og samningarétti sem hefur nýst viðskiptavinum stofunnar við úrlausn mála þar sem sérstaklega reynir á þekkingu á evrópskri löggjöf. ERGO lögmenn eru aðilar að Council of Bars and Laws Societies of Europe, CCBE.
Nánar um Alþjóðasvið

Starfsmenn

Hjá ERGO lögmönnum starfa lögfræðingar með víðtæka reynslu af hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og opinberar stofnanir. Allir starfsmenn ERGO lögmanna kappkosta að veita viðskiptavinum stofunnar faglega og persónulega þjónustu þar sem sérþekking hvers starfsmanns nýtist til fulls.

LÖGFRÆÐINGAR
Björgvin H. Björnsson
Héraðsdómslögmaður
bjorgvin@ergologmenn.is

Nánar
Einar Hugi Bjarnason
Héraðsdómslögmaður
einar@ergologmenn.is

Nánar
Haukur Örn Birgisson
Hæstaréttarlögmaður
haukur@ergologmenn.is

Nánar
Jóhann H. Hafstein
Héraðsdómslögmaður
johann@ergologmenn.is

Nánar
Ómar Örn Bjarnþórsson
Héraðsdómslögmaður
omar@ergologmenn.is

Nánar
Sigurður Óli Hauksson
Héraðsdómslögmaður
sigurdur@ergologmenn.is

Nánar
Svanhvít Yrsa Árnadóttir
Héraðsdómslögmaður
svanhvityrsa@ergologmenn.is

Nánar
SKRIFSTOFA
Svanhvít Þórarinsdóttir
Aðstoðarmaður lögmanna
svanhvit@ergologmenn.is

Nánar
Lilja Guðmundsdóttir
Fjármálastjóri
lilja@ergologmenn.is

Nánar

Hafðu samband

Þurfir þú á lögmannsaðstoð að halda eða viljir beina fyrirspurn til lögmanna stofunnar þá skaltu senda okkur tölvupóst eða fylla út reitina hér til hliðar. Erindi þínu verður svarað eins fljótt og kostur er.
Sími
412 2800
Fax
412 2801
Heimilisfang
Smáratorg 3
201 Kópavogi
Sendu okkur línu
Sendu okkur tölvupóst
eða sendu okkur línu hér
ERGO lögmenn slf. | Kt. 680110-0420